„Það er mikill áhugi fyrir fundinum og því var ákveðið að lengja hann frá því sem áður var og nú spannar hann tvo daga, fimmtudag og föstudag. Á fundinum gefst verkstjórum í íslenskum sjávarútvegi tækifæri til að mynda tenglsanet og fræðast um þær áskoranir og tækifæri sem nú blasa við í greininni,“ segir Eyrún Huld Árnadóttir, verkefnastjóri Íslenska sjávarklasans.
Dagana 8. – 9. janúar verður þar haldinn Verkstjórafundur Íslenska sjávarklasans. Þetta verður í þriðja sinn sem Íslenski sjávarklasinn stendur að fundi fyrir verkstjóra í íslenskum sjávarútvegi, en íslensku sölufyrirtækin stóðu að þeim um árabil fyrir aldamót. Tilgangur þeirra var að efla tengsl milli verkstjóra og skiptust þeir á hugmyndum um bætta vinnslu og aðferðir. Eyrún segir að nú sem áður sé helsta markmiðið með fundunum að auka samstarf, samvinnu og kynni á meðal verkstjóra í fiskvinnslufyrirtækjum og vinnsluskipum í landinu. Þannig megi auka verðmæti í sjávarútvegi.
Á fundinum verða þrjú megin viðfangsefni: Sölumál og fisk- og fullvinnsla, lenging hillutímans og loks öryggi starfsmanna. Þau voru að nokkru leyti valin í samráði við verkstjóra í vinnslum landsins. Flutt verða margvísleg erindi, pallborðsumræður um lengingu hillutíma og lögð verður sérstök áhersla á umræður í hópum. Auk þess verður farið í heimsókn í Marel og Samhenta í Garðabæ.
Verkstjórafundur Íslenska sjávarklasans verður að þessu sinni haldinn í samstarfi við Icelandic Group, Kælismiðjuna Frost, Marel, Skagann og Samhenta dagana 8.-9. janúar nk.
Skráning á fundinn fer fram á sjavarklasinn@sjavarklasinn.is.
Staðsetning: Hús Sjávarklasans, Grandagarði 16, 101 Reykjavík
Verð: 22.400 kr. / 20.900 kr. á mann fyrir tvo eða fleiri.