Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, verður að þessu sinni haldinn 3. nóvember 2016 og ber yfirskriftina Tækifæri á traustum grunni. Þar verða rædd mál sem varða sjávarútveginn svo sem áhrif gengisþróunar á afkomuhorfur útflutningsgreina og stöðu sjávarútvegs í alþjóðlegu samhengi. Auk þess verður farið yfir fjöldamargar nýjar upplýsingar úr gagnagrunni Deloitte fyrir árið 2015. Þá skoðum við uppbyggingu á Vopnafirði og samspil sjávarútvegs og framþróunar í tækni.
Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavik Nordica kl. 8.30-10.00
Verð kr. 3.500 - morgunverður frá kl. 8.15.
Skráning á ráðstefnuna er á netfangingu skraning@deloitte.is
Dagskrá:
- Opnunarávarp - Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi
- Sjávarútvegsgagnagrunnur Deloitte - árið 2015 - Jónas Gestur Jónasson, endurskoðandi og meðeigandi hjá Deloitte
- Fiskur og útlönd - Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra
- Stolt siglir fleyið mitt ... krónuna á - Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins
- Íslenskur sjávarútvegur í alþjóðlegu samhengi - Ágúst Einarsson, prófessor við Háskólann á Bifröst
Sjávarútvegsdagurinn er haldinn af Deloitte ehf, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.
