Sérfræðingur í markaðsmálum
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) leita að kraftmiklum einstaklingi til að bera ábyrgð á erlendu markaðsstarfi og utanríkisviðskiptum með íslenskar sjávarafurðir. Hollur og góður íslenskur fiskur er seldur um allan heim og fjöldamörg tækifæri eru til staðar til að efla enn frekar þessi viðskipti. Samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs liggur í heilnæmu umhverfi, ábyrgu fiskveiðistjórnunarkerfi, áratuga þrautseigju og reynslu íslenskrar þjóðar og drifkrafti öflugra íslenskra fyrirtækja.
Helstu verkefni:
Ábyrgð á þróun og rekstri sameiginlegrar erlendrar markaðssetningar íslenskra sjávarafurða
Greining á mörkuðum, útflutningi íslenskra sjávarafurða og viðskiptatækifærum
Ýmis málefni tengd ímynd íslensks sjávarútvegs
Samstarf við hagsmunaaðila í sjávarútvegi, þjónustuaðila og stjórnsýslu
Menntun og hæfni:
Háskólamenntun í markaðsfræðum eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af markaðsstörfum á erlendum mörkuðum er æskileg
Mjög góð þekking á stafrænni markaðssetningu og samfélagsmiðlum
Hæfni til að greina, setja fram og miðla upplýsingum á skýran hátt
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Mjög góð samskipta- og samvinnufærni
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsóknir skulu berast á https://attentus.umsokn.is/ ásamt ferilskrá og kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 30. október nk. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, í síma 591-0300.
Frekari upplýsingar um starfsemi SFS má nálgast á www.sfs.is.
