Sjávarútvegsráðstefnan 2016 verður haldin í Hörpu dagana 24.-25. nóvember.
Hægt er að sækja Ráðstefnuhefti Sjávarútvegsráðstefnunnar 2016 á vef félagsins. Í því er að finna dagskrá, lýsingu á málstofum og erindum, framúrstefnuhugmyndum og margt fleira. Athugið að ráðstefnuheftið er 11 MB og getur því tekið allnokkurn tíma að hlaða því niður.
Framúrstefnuhugmyndir
Að þessu sinni eru átta framúrstefnuhugmyndir kynntar í Ráðstefnuhefti Sjávarútvegsráðstefnunnar, en þær eru:
- Kortlagning veiðisvæða í kringum Ísland
- TraceAPPbility
- Særafall
- Vefurinn Sporður – opinn og gagnsær sjávarútvegur
- QualiCator® – THE FOOD QUALITY INDICATOR
- Ofurkæling á fiski
- Strandveiðiþjarki með fjarstýringu
- Vistvænt íslenskt skip
Þrjár af þessum hugmyndum fá verðlaun og verða kynntar sérstaklega á ráðstefnunni.