Kæru félagsmenn,
Við vekjum athygli ykkar á eftirfarandi reglugerð sem birt var á vef stjórnartíðinda en birtist ekki eins og venjulegt er að á vef atvinnuvegaráðuneytisins.
Kveðja,
skrifstofa SFS
| REGLUGERÐ |
| um (4.) breytingu á reglugerð nr. 532/2015 um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2015. |
|
1. gr. 3. gr. verður svohljóðandi: Skylt er að ráðstafa mánaðarlega 50% af makrílafla einstakra skipa til vinnslu. Fiskistofa skal fylgjast með að skilyrði um vinnsluskyldu séu uppfyllt hið minnsta einu sinni í mánuði eftir að skip hefur hafið veiðar. 2. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. júlí 2015. F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóhann Guðmundsson. Ásta Einarsdóttir. |
| Útgáfud.: 31. júlí 2015 |